Þrídí.is
Laufabrauðs útramma skurðarsett.
Laufabrauðs útramma skurðarsett.
Couldn't load pickup availability
Skerðu út laufabrauðið á einfaldan hátt með laufabrauðsskurðarsetti frá Þrídí. Settið er ætlað þeim sem fletja sjálfir út deigið og vilja fá jafnt og snyrtilegt form á kökurnar áður en þær eru skreyttar.
Í pakkanum eru tvö útskurðarform: hringur sem gefur laufabrauðinu hefðbundinn bylgjóttan kant og nýtt hjartaform sem gefur því alveg nýtt yfirbragð.
Notkun
Fletjið deigið þunnt út og leggið útskurðarformið á það. Rúllið síðan kökukefli yfir formið þannig að það skeri alveg í gegnum deigið. Lyftið forminu af og fjarlægið umframdeigið frá brúnunum. Laufabrauðið er þá tilbúið fyrir útskurð með hníf, laufabrauðshjóli eða stimplum.
Hafa samband
Hafa samband
Umhirða og þrif
Umhirða og þrif
Þvoið laufabrauðvörurnar í höndunum með volgu vatni. Hitastig vatnsins má ekki fara yfir 60°C þar sem meiri hiti getur valdið aflögun á plastinu. Ekki er mælt með að setja vöruna í uppþvottavél.
Um efnið
Um efnið
Efnið sem við notum við framleiðslu er styrkt útgáfa af PLA (polylactic acid) sem er lífbrjótanlegt við réttar aðstæður og uppfyllir kröfur ESB um snertingu við matvæli.
Íslensk framleiðsla
deila
