Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 3

Þrídí.is

Jólatré laufabrauðsstimplasett

Jólatré laufabrauðsstimplasett

Venjulegt verð 3,850 ISK
Venjulegt verð Tilboðsverð 3,850 ISK
Tilboð Uppselt
Skattar innifaldir. Sending reiknast við greiðslu.
Magn

Gefðu laufabrauðinu hátíðlegan svip með jólatrésstimplum frá Þrídí. Stimplarnir eru hannaðir og framleiddir af Þrídí og færa nýja möguleika inn í gamla og góða hefð.

Í pakkanum eru tveir útskurðastimplar með ólíkum jólatrésmynstrum.

Notkun
Þrýstið stimplinum þétt niður í deigið þannig að skurðurinn nái alveg í gegn. Það auðveldar að flétta mynstrið og fá fallega útkomu.

Aftast í myndasafninu má finna leiðbeiningarmyndband sem sýnir notkun laufabrauðsstimpla Þrídí.

Hafa samband

Umhirða og þrif

Þvoið laufabrauðvörurnar í höndunum með volgu vatni. Hitastig vatnsins má ekki fara yfir 60°C þar sem meiri hiti getur valdið aflögun á plastinu. Ekki er mælt með að setja vöruna í uppþvottavél.

Um efnið

Efnið sem við notum við framleiðslu er styrkt útgáfa af PLA (polylactic acid) sem er lífbrjótanlegt við réttar aðstæður og uppfyllir kröfur ESB um snertingu við matvæli.

  • Íslensk framleiðsla
Skoða allar upplýsingar