Þrídí.is
Laufabrauðshjóla hulstur
Laufabrauðshjóla hulstur
Ekki tókst að sækja upplýsingar um afhendingu
Passaðu upp á laufabrauðshjólið á milli ára með sérhönnuðu hulstri frá Þrídí.
Laufabrauðshjólið er oft notað aðeins einu sinni á ári og á það til að týnast eða skemmast í skúffunni þess á milli. Hulstrið leysir það. Hjólið smellur fallega á sinn stað í boxinu og lokið smellist líka aftur, svo boxið helst lokað og hjólið haggast ekki.
- Hjólið smellur örugglega á sinn stað í boxinu
- Smellulok sem helst lokað
- Verndar skurðarhjólið gegn höggum og hnjaski
- Auðvelt að finna hjólið aftur þegar laufabrauðsdagurinn rennur upp
- Hannað og framleitt á Íslandi af Þrídí
Fáanlegt fyrir hefðbundna laufabrauðshjólið og litla laufabrauðshjólið frá Þrídí. Veldu þá stærð sem passar við þitt hjól.
Athugið: Laufabrauðshjól fylgir ekki.
Hafa samband
Hafa samband
Umhirða og þrif
Umhirða og þrif
Þvoið laufabrauðvörurnar í höndunum með volgu vatni. Hitastig vatnsins má ekki fara yfir 60°C þar sem meiri hiti getur valdið aflögun á plastinu. Ekki er mælt með að setja vöruna í uppþvottavél.
Um efnið
Um efnið
Efnið sem við notum við framleiðslu er styrkt útgáfa af PLA (polylactic acid) sem er lífbrjótanlegt við réttar aðstæður og uppfyllir kröfur ESB um snertingu við matvæli.
Íslensk framleiðsla
deila

